DM í UT endaði með sögulegum viðburði sem á seint eftir að gleymast. En svona fór þetta þó.

Undanúrslit gengu ágætlega. Þrír komust upp úr hverjum riðli og svo þrír upp úr hvorum undanúrslitaleik. Það var stundum mjótt á munum með þá sem voru í 3 og 4 sæti að það skapaði mikla spennu. En það var úrslita leikurinn sem sló út öll met er spennu varðar. Þar voru eftir taldir komnir í úrslit:

~H2O~DNA~
~H2O~Svenni~
~H2O~Bunny~
~H2O~Balli~
Krafla-Draugsi
brb-NuJack

Í honum þurfti ~H2O~DNA~ að hverfa snemma frá leik vegna tæknilegra vandkvæða. Leikurinn var mjög spennandi og baráttan um fyrsta og annað sæti var vægast sagt stórkostleg. Fyrir áhugasama eru demó frá mönnunum í fyrsta og öðru sæti <a href="http://www.hugi.is/files/games/ut/s12001/demo/">hér</a>. 3 efstu sætin skiptust á eftirfarandi:

1. ~H2O~Bunny~
2. Krafla-Draugsi
3. ~H2O~Svenni~

Fréttir og demó úr CTF koma hér á morgun.

bjornjul
UT P1mP
kv,