sælir unrealistar, ég og vinir mínir höfum ákveðið að leggja land undir fót í unreal geiranum, og eftir MJÖG langa dvöl í aq, eða 2 og hálft ár (síðan hann var spilaður fyrst á skjálfta) höfum við ákveðið að hætta þeirri vitleysu :). Mig langaði nú bara svona að forvitnast um þessa nýju menningu, er erfitt að finna sér mötts (plz ekki segja mér að þið kallið þetta scrimm :P)? eru svona pickup dæmi vinsæl? veit fólk hvort unreal 2003 verði spilaður á næsta skjálfta?

Ef fólk er forvitið þá erum við strákarnir, eða enn sem komið er bara ég, tazzman, gimp og phrozen í [DON] sem hefur náð 2. sæti í aq tvisvar og 3 sætinu tvisvar einnig, og ætlum okkur enn meiri hluti í unreal :).

Þetta voru mín 2 kynningar cent
[DON]TazZman