Eitt sem ég þoli bara ekki við sám frænda er að hann sér aldrei fyrir framan nefið á sér….hann heldur alltaf að hann sé einn í heiminum og það sé enginn annar þarna úti frá neinu öðru landi….pffff….óþolandi….ég fór inná UnrealTournament.com og sá að þar var einhver keppni sem mér leist vel á…..í verðlaun var “Limited Edition Black Leather Unreal Tournament Jacket” ég hugsa djö hvað væri svalt að mæta í einum þannig á næsta skjálfta…! En þegar ég fer inná síðuna með keppninni fæ ég að vita það að ég þarf að skrá mig inná IGN.Com, ég hugsa ok, fyrir þennan leðurjakka væri nú alltílagi að gefa e-mail addressuna mína einu sinni en á netinu, ég gerði það, og viti menn þá fæ ég að komast inná keppnissíðuna…..og þar stóð stórum skýrum stöfum, svart á hvítu “ open to legal residents of the U.S. and Canada ”, eftir að ég var búin að gefa upp e-mail addressuna mína. Ég verð þá bara að verða af honum, og mér sem langði svo í hann…! :.( *sniff*