Jæja já.

Ég hef lengi verið að hugsa um að spýta í lófana og fara skella mér af krafti í UT og hef í þeim tilgangi spilað single playerinn af töluverðri elju, svona til að læra á vopnin og slíkt.

En eftir að hafa fylgst með á þessum kork sé ég ekki minnstu ástæðu til að fara taka þátt í þessu samfélagi. Þvílíkt safn rugludalla og þverhausa hef ég ekki séð áður og þykist ég hafa séð þá nokkra áður.

Þið virðist þjást af sjúklegri þörf við að setja útá það sem adminar eru að gera og í raun virðist ekkert sem er gert fyrir ykkur vera nógu gott.

Þið verðið að átta ykkur á því að þegar um fáa servera er að ræða og í litlu samfélagi, verða menn að haga sér skikkanlega og reyna að vera ekki með stanslausar pillur útí þá sem eru að halda hlutunum gangandi því þessir menn eru að eyða sínum tíma í þetta og eiga ekki skilið að þurfa hlusta á þetta kjaftæði.

Svo eru það bönnin, það er 100% réttur admina að banna þá sem þeim finnst eigi það skilið og þurfa ekki undir neinum kringumstæðum að þurfa réttlæta það fyrir einum eða neinum því að þeir banna ekki nema að hafa ástæðu fyrir því.

Reynið að hugsa aðeins áður en þið farið af stað með fleimið í garð þeirra sem stjórna. Reynið að vinna með þeim í að byggja þetta upp en ekki keppast við að rífa niður.