Menn eru eitthvað að tala um að admin-ar séu að skipta yfir á november í miðjum leik. Ekki kannast ég nú við þetta en skal reyna að gefa skýringu á þessu.

Það er hugsanlegt að admin-ar séu ekki að þessu vegna þess að það er ákveðin command lína sem ér í gangi, það er að segja ef server-inn hrynur þá endurræsir hann sig með sömu línu. Þegar server-inn ræsir sig þarf að ræsa server-inn með einhverju borði og það vill svo til að það borð er November. Þannig að ef server-inn hrynur í miðjum leik þá ræsir hann sig aftur “med de same” og þá kemur November á.

Þetta gæti hugsanlega verið málið ef ekki þá er einhver sem skiptir um borð. Vona að þetta skýrir eitthvað, og biðja menn svo aðeins að sýna stillingu ekki stökkva strax upp og dæma. Ef maðurinn sem slíkur væri svona snökkur að dæma þá værum við búnir að senda Kjarnorkusprengju á Afganistan.

Alli