Ég og aðrir höfum tekið eftir miklu laggi á simnet CTF undanfarnar vikur. Hvers vegna þetta er vitum við ekki, en við vitum að serverinn laggar meira eftir því sem fleiri eru. Þess vegna viljum við fá að vita hve öflug tengingin er eða hvað sem það er sem orsakar laggið. Ég er a.m.k. orðinn þreyttur á þessu og vil að þessu sé kippt í liðinn. Ef þetta er bara bull í mér, vinsamlegast látið mig vita. Og líka, tillaga frá mér um að minnka hámark spilara í 12 og sleppa öllum borðum stærri en laputa. Borð eins og trainstation eru eiginlega alltof stór.

Svolfluga