Strákar reyndið aðeins að sýna heilbrygða skynnsemi. Þetta er ekki flókið. Nafnið á server-num á nú að segja þetta allt. Þetta er “ClanMatch Server” og hvað þýðir það? Jú þetta er server þar sem clan match leikir eru spilaðir eða æfingar teknar. Hvað tekur clan match langan tíma og hvað taka skipulagðar æfingar langan tíma? Það er sjaldan að clan mödds fari yfir 2 tíma og ná aldrei, nema með algeru klúðri, uppí 3 tíma. Því átti þetta að lyggja í augum uppi að engin eða ekkert lið getur tekið server-inn frá í heila kvöldstund.

Það lyggur frami tillaga meðal okkar admina um að þessi tímarammi verði 2 tímar á mann/lið per sólahring. Þetta hefur ekki verið fullsamþykkt ennþá en þetta verður með einhverri svipaðri mynd.

Þess vegna verða menn að tilgreina frá hvaða tíma þeir vilja hafa server-inn og til hvaða tíma. Ef engin hefur skráð sig fyrir server-num eftir þennan tiltekna tíma þá er ekkert því til fyrirstöðu að menn verði aðeins lengur.

Því er lagt til að TbF endur skoði sýna pöntun á server-num 19-sept.

Menn verða að fara að tileinka sér ákveðna tillitssemi í þessum heimi ef við viljum hafa hann þannig að það sé þess virði að lifa í honum.

Takk fyrir mig.

Alli