Sælir guttar!

Það er nóg af Unreal spilurum á íslandi til að spila skemmtilega leiki með allavega 6 í hverju liði. Málið er bara það að þeir eru ekki nógu margir til að það takist allan daginn eða allt kvöldið. Þess vegna verðum við að mæta á svipuðum tíma.
Tillagan er að hittast á Simnet CTF 21:00 með sérstaka áherslu á mánudaga.
Ég er flúinn til útlanda að spila ef netþjónninn verður ekki fullur næsta mánudag. Bara gefst upp og fer þangað sem fjörið er mest. Segji bara Adios og hverf á braut….for good.
Nenni ekki þessum leikjum með 2-3 í hverju liði lengur. Ég vill bara stuð og mikið af iðragúllasi út um allt. Sjáumst vonandi sem oftast og örugglega á MÁNUDÖGUM KLUKKAN 21:00.

Over and Out. =DNA=