Fæstir af ykkur vita hverning aimbottar virkar og hverning á að leita uppi svoleiðins, drifin áfram á fordómum og fáfræði eins og í nornaveiðinum, sakandi blásaklaust fólk um að nota slík vítistól… Svo gróft er það að maður má ekki lengur vera of góður.. þá fara allir í hitt liðið.. og saka mann um að vera með aimbot.

Síðan er kjafturinn á íslenskum UT spilurum með ólíkindum, einhverjir niðurmálsmenna að þykjast stórir með því að rífa kjaft í UT, ircinu og á huga. Þetta verður bara að stoppa annars fer aftur að fækka í UT á íslandi. Eins og sumir af okkur erum búnir að vinna hörðum höndum við að byggja upp spilun á UT á íslandi.. og þar sérstaklega vinur okkar Bjorn Júl og meðlimir í H2O. Koma upp fullt af góðum serverinum, fá aðra til að stofna klön og jafnvel búa til heilan alsjálfvirkan ladder fyrir þessi fáu klön, þúsundir lína í kóða, tugir tíma í gefinni vinnu eingöngu vegna þess við viljum fá fleirri til að spila UT.

Ég mun persónulega taka hvern þann í klóstið sem er leiðinlegur við newbia, við þurfum newbia til að vaxa og ég bið alla newbie í UT velkomna með báðum höndum. Menn verða hratt góðir við ástundum.

Kveðja
~H2O~Svenni~
Vinur allra í óraunverulegri keppni