Hæ!

Ég er dálítið að spila CTF í gamla góða UT á Truff leikjaþjóni. Málið er að ég er nokkuð í því að hanga við flaggið og fragga óvininn þar. Galli er hinsvegar að mig vantar orðið “incoming” sem verður að teljast nokkuð handicap fyrir þessa stöðu. Ég bara finn ekki þetta orð í speech binding í leiknum mínum. Ég held að ég sé með flesta (þó ekki alla) bónuspakka innstaleraða.

Getur einhver sagt mér hvernig ég get kippt þessu í liðinn? Er einhver einnig til í að segja mér hvort og þá hvernig hægt er að “binda” setningar í “team say”?

Að lokum langar mig svo bara að hvetja menn til að láta sjá sig á Truff CTF servernum. Þessi server hefur ágæta svörun (ping) og yfirleitt nice fólk þarna.

UT rokkar, CS sukkar.

Kveðja,
T100