Ég hef orðið soldið var við það að menn eru að gera langt mál lengra hérna á korkinum. Tilgangslaus svör eru tilþess fallinn að maður hættir að lesa hann. Ég hef orðið óþyrmilega var við þetta hjá nokkrum þeim stigahæstu inná Unreal. Það sem ég meina er það að menn skrifa eitthvað með innihaldi og einhverjir svara án þess að vera í raun að segja eitthvað. Yfirleitt er broskall eða lol (laugh out loud) látið duga. Nægir mér að nefna eitt dæmi í byrjenda-þræðinum hérna á undan. Coverop skrifaði þarfan pistil og Czar svarar:Já, ég man eftir þér!.. hvern andskotann kemur það því við hvort simnet eigi að setja upp byrjendaserver. Því mæli ég með því að menn svari málefnalega eða láti sér nægja að elta ókunnugar skoðanakannair í leit að stigum. Með kærri kveðju. P.S. mig vantar að komast í clan! geri ekki miklar kröfur :)