Hæ!

Er einhver til í að segja mér hvernig ég nota adrenalin? Þegar það er komið í 100 hvað geri ég þá? Ég finn ekkert um þetta í bókinni sem fylgdi leiknum og heldur ekkert um þetta í settings, þ.e. ég finn enga takka til að binda við þennan fídus.

Annað sem mig langar að vita um er lenda menn í því að þurfa að download-a sama borðinu aftur og aftur? Það er alveg plága bæði í UT1 og UT2003 að maður tengist server og dl borði. Síðan kannski daginn eftir ætlar maður aftur í sama borð og þá þarf maður að dl því aftur. Þetta er sérstaklega óþolandi í UT2003 því borðin þar eru oft svo stór - t.d. 10000k. Hvernig virkar þetta eiginlega - setur tölvan borðin í einhvern temp-file og síðan tapast borðið ef maður t.d. gerir “disk cleanup”?

Með von um að sjá fleiri á servernum,
FigRoll - No bark, All bite