Eða var það PeZiK ?

Sælir UT(2k3) unnendur, langt síðan að maður korkaði síðast. Mig langaði bara að forvitnast hvort að menn væru nú ekki búnir að uppfæra tölvubúnaðinn sinn og tilbúnir í slaginn í UT2K3. Mér finnst það frábært að sjá að það er áhugi að kvikna í þessu samfélagi í sambandi við UT og vonandi leiðir það menn út í UT2K3 ( maður er alltaf bjartsýnn sjáiði til ). :D

Ég er búinn að vera að þvælast á nokkrum erlendum UT2K3 serverum núna undanfarið og tekið nokkur flögg með massann af fólki og viti menn, það er bara helvíti gaman í UT2K3 CTF og væri enn skemmtilegra ef maður gæti verið á íslenskum serverum án þess að spila við einn botta eða sleikja veggi ;)

Svo vil ég endilega benda á eitt helvíti flott UT2K3 modd sem kom út fyrir nokkru og heitir “Face Off”, það er íslenskur server að koma upp og ég skal pósta hér þegar hann er up'n running. til þess að nálgast Face Off skuluði fara hingað http://faceoff.modportal.net/

Svo eitt að lokum, eru menn spenntir fyrir UT2K4 |Z|Server ?

Kveðja,
<br><br>|Z|PeZiK
|Z|PeZiK