Sælir, mig langaði bara að benda þeim sem stjórna www.hugi.is/unreal að þetta svæði er orðið mjög skítugt og tími til þess að taka til. Það vantar allt skipulag fyrir UT2K3 skrár ( mappacks, patch-a ofl. ) Mætti líka vanda uppsetninguna svo að síðan verði aðgengilegri fyrir fólk sem langar að taka þátt í fjörinu. Ég hef fengið fjölmargar spurningar um hvar það eigi að nálgast efni sem hefur týnst í þessum frumskógi. Gömlu UT fælarnir eru að þvælast fyrir nýju fólki “noobs” sem þekkir þetta ekki og er að setja þetta inn í UT2K3!

Svo er líka spurning að hafa þessa síðu bara fyrir Unreal Tournament en ekki UT2K3. Ég veit að það þessi síða er algjört trúarbragð fyrir suma menn sem eru fastir í gamla UT og neita öllum nýjungum. Þá er ég að meina nýja ferska UT2K3 síðu sem mun ekki raska ró þeirra sem vilja deyja með beinagrindinni í skápnum.

Sömuleiðis er UT ekki sami leikur og UT2K3 - þeir eru svart og hvítt - með allri virðingu fyrir UT.

Ef við ætlum að byggja upp nýtt samfélag, því ekki að gera það með stæl.

<br><br>|Z|PeZiK

<a href="http://z.xo.is/z“>|Z|Forum</a>
<a href=”http://spjall.vaktin.is">Unreal Spjall</a
|Z|PeZiK