Jæja, núna erum við búnir að fá allt draslið og gátum ekki setið á okkur og settum hana saman í snatri. þetta er Pentium 4 2.53ghz, DDR 333mhz 512mb, Gigabyte 8sg667 móbó - og við erum farnir á hausinn ;)

Í kvöld (þriðjud. 18.feb) væri fínt að fá nokkra UT2K3 spilara til þess að hjálpa okkur með að prufa bandvídd og fleira.

Ég kem þá á #ut.is og #Z.is og fæ að kalla á ykkur, ég reikna með því að það verði um kl. 18:00 og auglýsi IP addressuna þar.

Við munum setja upp |Z|server Forum “spjallþráð” þar sem þið getið tjáð ykkur um serverinn, úrbætur, væl og annað. Það er í vinnslu en gerist mjög hratt. Það verður auglýst hérna á Huga.

Nú er ekkert annað en að dusta rykið af músinni og góða skapinu, kalla á félagana í klaninu - nú getum við farið að keppa eins og óðir hundar !!! úúúúúhaaaa !!!

|Z|PeZiK & |Z|BeeZ
|Z|PeZiK