Ok… ég og nokkrir af mínum fellow UT dýrkendum ákváðum að lana í honum um daginn og vorum allir búnir að drösla tölvunum heim til mín og setja upp allar tölvurnar en svo þegar við vorum að deyja úr tilhlökkun og ég startaði server… en enginn kom… það sá enginn serverinn minn… :( ekki einu sinni ég sjálfur… við prófuðum að láta einhvern annan hosta en ekkert gekk… þannig að við neyddumst allir til að spila Q3A mestallan tíman (ég veit að nú hrópa sumir: HELGISPJÖLL!!! og: GUÐLASTARI!!!) en án djóks veit einhver hvernig á að lana í UT… þarf eitthvað að breyta protocolunum eða eitthvað svoleiðis… (og já ég gerði “optimize for LAN” í server options) plííís getur einhver hjálpað mér?? Ég er orðinn hundleiður á að spila Q3A í CTF!!! (hann var bara ekki gerður fyrir það) og mig langar svooooo í assault!!

P.S Ég er með UT crackaðan á flestum tölvunum…. haldiði að það skipti einhverju máli…? <BR