Eins og margir vita sem hafa spilað UT þá hafa þeir allir lennt í Lollageir og eflaust verið pakkað saman.

Ég tek dæmi, ég og hann vorum saman í TbF, án efa einn af bestu leikmönnunum. Þetta er ekki neitt egó shit, bara sannleikur, með virðingu til allra annara í TbF.

En málið var að hann fékk aldrei neina athygli.. ég bara skil það ekki, það voru t.d kosningar núna og þá voru menn eins og smile, smurf og smelkur að fá atkvæði.. einnig fékk ég nokkur, en hvað með hann ? ég get einfaldlega ekki séð að hann sé verri en neinn af þessum leikmönnum. Teamplayer ársin = hann.

Ég var flaggberi TbF liðsins og hann seinni sóknarmaður og á móti liðum fékk ég óneitanlega mikla athygli sem sóknarmaður / flaggberi. En málið er að hefði hann ekki verið með mér í sókninni hefði ég ekki verið svona góður. Ég man einu sinni þegar hann var í öðru klani en ég… þó bara í smá stund, en það var bara bull, ég suckaði.

En ég held að ef fólk rifjar allmennilega upp atburði frá t.d þegar TbF urðu tvisvar skjálftameista, og hugsi málið þá ættu þeir að sjá að þetta var í raun besti maður liðsins.
En ég meina þetta er aðeins mitt álit, og mitt álit er að fólk hugsaði ekki nógu mikið áður en þeir kusu, það var að flyta sér

Virðingarfyllst. ±TbF±Electro