Ég var að spila Assult á einhverjum útlenskum server um daginn og í borðinu þar sem á að skemma e-n demant gerðist eftirfarandi.
Mitt lið var í vörn, við tókum okkur stöðu fyrir framan keðjurnar og vörðumst 2 árásum… allt í einu fæ ég skilaboð um að einhver hafi opnað dyrnar að gimsteininum. Ég hugsa með mér ‘WTF? Það er ekki einusinni búið að rústa keðjunum sem halda fyrstu hurðinni’
Í sama borði hefur gerst að gimsteinninn hafi verið eyðilagður án þess að hurðin að honum hafi verið opnuð.
Frigate-borðið hefur svipaða sögu að segja. Compressorinn hefur verið eyðilagður áður en ‘the ship has been entered’.
Veit einhver hvernig fólk fer að þessu?(Það skal tekið fram að translocatorinn var ekki virkur.)