Sókn Í fyrsta lagi er þetta grein sem á að geta kennt öllum eitthvað og ég veit um miklu fleiri trick en ætla ekki að skrifa þau því þá verður greinin löng og btw ekki koma með eitthvað leiðinlegt komment eða skot á mig.
Í UT er ekki til neitt meira pirrandi en góður sóknarmaður sem kann ýmsar krókaleiðir. Maður á alltaf að koma vel hlaðinn í óvina beisið, full armoured t.d. Hér koma nokkur sóknarbrögð fyrir n00bs í ýmsum borðum

Mikilvægustu “tólin” fyrir sóknina:
1. Impact hammer: Notar hann til að stökkva yfir allskonar hluti
2. Shield belt: Til þess að þola öll þessi skot :Þ
3. Vopn: Rocket launcher, Shock rifle og Minigun er öll góð sóknarvopn
4. Amplifier: Eykur styrk skotanna um eitthvað, veit ekki hvað mikið, gott er að nota þetta til að eyða vörninni

Bollwerk: Nokkkur brögð hér.
1. Taka fánann, hlaupa upp brekkuna hjá kössunum, dodge-a yfir eldgosið, hoppa með jump boots upp yfir innganginn og skjóta 6 RL skotum að inngangnum eftir að þú kemur út, því þar koma þeir allir á eftir þér.
2. Taktu fánann og hlauptu þar sem brynjan er(armour), dodge jumpaðu yfir eldgosið, taktu upp impact hammer og stökktu aftur yfir eldgosið, farðu þar sem amplifier er og hoppaðu þar niður í innganginn þinn og skilaðu.
3. Labbaðu beint áfram, beinustu leið út! Með heppni kemstu með fánann.

Damtofar:
1. Rétt áður en þú tekur fánann tekuru upp impact hammer og skýtur þér upp um leið og fáninn er á þér, þú skýtur þér upp í gegnum hurðina fyrir ofan og rushar út þar sem rocket launcher er eins fljótt og þú getur og hoppar niður stífluna í litla lækinn, og síðan inn í þitt base
2. Önnur góð leið er að taka fánann og fara vatnsleiðina á bryggjunni. Þú tekur fánann og ferð eins hratt og þú getur að bryggjunni og impact hammer jumpar yfir helminginn af vatninu, verður að vera mjög fljótur svo að enginn sjái þig.

Ég lærði allt með að horfa og læra hjá öðrum t.d Electro, Lolligeir, potent, kapitan o.fl

Ég get komið með tugi tricks og fleiri greinar en maður fær hvort eð er bara diss fyrir svona greinar (damage) og kallaður stigahóra(smelkur). Ég er bara að reyna lífga upp á áhugamálið og kenna öðrum allt sem ég kann þannig please ekki koma með eitthvað leiðinlegt comment á þessa grein :) Og ég hef líka verið að kenna nokkrum á klanmatch server með Dipper og ég get alveg haldið því áfram ef þið hafið samband við mig á irc. Cool væri að stofna UT kennslu með Dipper:)

±TbF±Roadrunner²