Hæ Bloodthirster hér.
Málaliðar óskast…
Já loksins er hægt að Staðarnetast í Hinu húsinu.
HQ er staðarnetmót sem haldið verður alla þriðjudaga milli kl.1400 og 2400. 16 ára aldurstakmark (no cry babies) 100MB switch net mun sjá okkur fyrir hraða og Domino's mun sjá okkur fyrir næringu á frábæru verði.
1000 kr inn 500 fyrir aukatölvu og 500 fyrir auka spilara.
Það verður spilað nánast all sem spilurum dettur í hug að spila, nema kannski: tetris, pacman og aðrir leikir sem ekki er gaman að spila á netinu.
Kjörinn staður til að koma með klanið sitt og spreyta sig gegn öðrum spilurum.
Skjávarpi og dúndur græjur búa til stemninguna og ef klanið þitt hefur myndband af afrekum sínum þá verður hægt að sýna það.
Gametíví verður okkur innan handa með kynningar á nýjum leikjum og hvað er að gerast í heimi tölva.
Ef einhverjar spurningar koma upp svarið þá þessari grein eða hringið í Bloodthirster í síma 8611176 eða e-mail: HQHH@hugi.is
Sjáumst hress(ir)
Kveðja Bloodthirste