Þann 6. mars síðastliðinn var haldið tölvuleikjaLAN í Flensborgarskólanum. Það heppnaðist vel að flestra mati og hafa ákveðnir aðilar í skólanum ákveðið að reyna það aftur. Það mun verða haldið helgina 12-14. Apríl í sal skólans. Það yrði ekki nonstop, við munum loka klukkan 22:00 á kvöldin, og klukkan 15:00 á sunnudeginum. Ef mæting verður góð, og hegðun betri en gengur og gerist á lönum, þá er möguleiki á að gera þetta að einhverju stærra og lengja opnunartíma.

Við höfum fengið Switcha lánaða sem og nokkrar aukavélar sem munu verða notaðar sem leikjaþjónar undir helstu leikina.

Við munum skipuleggja keppnir í Quake3 FFA, CS 3on3 og UT ctf + dm.

Staðsetning LANs: Flensborgarskólinn Hafnarfirði.

Til að keppendur geti nálgast reglur og aðrar upplýsingar auðveldlega höfum við ákveðið að setja upp heimasíðu. Hún mun verða frekar lítil og nett til að byrja með. Síðan verður á http://helvitis.tk (sem getur verið hæg stundum, ef svo er þá er hægt að nota http://flensan.svavarl.com ).

Checklisti:
Fjöltengi (mjög mikilvægt!)
Uncrossed Tp-snúra (mikilvægara)
Tölva sem er í lagi og getur keyrt þá leiki sem keppt verður í. (mikilvægast)
Skjár
Headphones (Bannað að koma með hátalara)
Mús og Lyklaborð

Verð:
1000 kr fyrir þá sem ekki eru í Flensborg
750 kr fyrir þá sem ekki eru í Nff en eru í Flensborg
500 kr fyrir þá sem eru í Nff



Fólk þarf að borga 500 kr extra fyrir hverja auka tölvu.
Aldurstakmark: 8. bekkur Grunnskóla.

Annars er hægt að senda email á izelord@nff.is og fragman@nff.is eða fara á ircrásina #flensan fyrir frekari upplýsingar og skráningu.

Skráning mun verða gegnum email !

Það sem þarf að koma fram við skráningu:
Alvöru nafn
Kennitala
Nick
Heimilisfang
Sími
Nff eður ei
Hvað maður vill keppa í


Kveðjur, Ágúst Sigurjónsson og Svavar Lúthersson