Góðan dag gott fólk,

Stóra Kið sem skók UT samfélagið svo um munaði fyrir
ekki alls svo löngu, hefur nú ákveðið að snúa aftur með
því markmiði einu að slátra hverjum þeim sem muni reyna
að standa í vegi fyrir því.

Þetta Clan sem alræmt var fyrir fjöldafrögg á serverum
símnets ásamt því að lumbra á fánaberum svo að sást á
stolti þeirra í lengri tíma(fréttir hermdu að nokkrir
höfðu á mikilli sálfræðiaðstoð að halda eftir að hafa
komist í tæri við meðlimi Ksins), svo ekki sé nefnt þaug
áföll sem heilu clönin fengu við komu Kröflu á Skjálfta
mótin.

Gamlir og góðkunnir meðlimir Kröflu verða áfram með
dálitlum fráföllum, en meira og minna þeir mest virku,
þeir sem eru í Kröflu nú eru :

K|Draugsi :
Sá er þeir kalla Dr. Augsi fyrir nákvæmi skota hans og útsjónarsemi.

K|Gourry :
Þá spilun sem hann kýs að spila kallar hann list og er
með hverju orði sönn, margur argur maðurinn er eftir hann.

K|DelphiGiz :
Maðurinn er hefur verið kallaður undirförull og
viðskotaillur, enda enginn staður óhultur þegar kemur á
eftir þér.

K|Nawrot :
Útlendingurinn sem hann og er oft kallaður, hefur verið lýst
sem hjartalusum manni sem er tilbúin til að gera hvað sem er
fyrir hinn sæta sigur á þeim er hann kallar fjendur sýna.

Enginn efi mun reynast á því að þessi ákvörðun Kröflu
hafi tölverð áhrif á þetta litla og jafnframmt nú saklausa
samfélag UTtara á íslandi, og mun Kið reyna hvað sem það
getur til að breyta þessum hryggleisingjum og heyglum í
verðuga andstæðinga, sem er að mati margra ógerlegt verkefni
en þar sem Krafla hefur nú aldrei sest við hálfklárað verk
þá mun þetta gjörast !

Læsið húsinu, lokið gluggum og felið ykkur undir rúmmi því
Kið er að KOMA !!!

Samúðarkveðjur,
K|Draugsi and the K !