Það er eitt sem UT spilarar þurfa að hafa í huga þegar þeir fara á Skjálft. Hvaða Mod eru þeir með, sem dæmi ef maður er með chaos Modið og einhver sem er ekki með það reynir að joina þá byrjar hann að downloada því og það eru bara nærri 30 megabæt sem hann downloadar af þeim vélum sem eru ekki með það, ég er ekki búinn að athuga með önnur Mod en það væri sniðugt að safna öllum modonum saman í eina möppu sem er svo hægt að sharea. til þess að aðrir geti náð í þau. Það er líka einfaldast að taka þau öll útaf fyrir Skjálfta.