Háttvirtir Unreal garpar!

Við höfum nú allir séð hvað skítkast, kjaftur og móðganir gerir fyrir móralinn og eina leiðin til að lyfta honum á hærra plan að nýju er að sættast, snúa við og fara í öndverða átt.

Svona mætti byrja.
Ég bið alla afsökunar sem hafa móðgast á einhverju sem ég hef sagt.
Svenni þú værir djöfull flottur ef þú værir ekki svona myrkur í máli og spilaðir alltaf eftir “reglunum”. Ég óska sér í lagi eftir jákvæðu svari frá þér.
Það er mikið af frábærum spilurum hérna og töluvert af góðum efnivið og við ættum að byggja hvorn annan upp, sama í hvaða liði við erum. Það eflir broshlutfallið verulega og gerir leikinn margfalt skemmtilegri.

Það sem ég tel að þurfi að gera.
1. Sleppa öllu niðrandi á hvaða vettvangi sem er.
2. Spila leikin með sömu leikreglum og meirihlutinn fer eftir.
3. Sýna drengskap, vera til fyrirmyndar og hafa gaman af leiknum.
Það vita allir hvað átt er við og óþarfi að segja meira.

Ef þú ert sammála sendu inn svar.
Ef þú ert ósammála sendu inn svar.
Sendu mér móðgun og ég læt ekki sjá mig framar.
Sendu mér hrós og þú færð það margfalt til baka.

Með sáttarkveðju.
AlienDNA