Þessu ætla ég að reyna að svara eftir bestu getu og vitund. Þannig er mál með vexti að ég og balli sendum inn frekar harðroðan kork um daginn þar sem við kölluðum 7 aðila öllum illum nöfnum, sögðumst hafa fengið nóg og nú yrðu þeir allir bannaðir. Það sem færri vita, þó það hafi spurst útum allt, er að ég og balli vorum búnir að segja starfi okkar sem adminar lausu áður en þessi korkur var sendur. Við vorum báðir orðnir mjög reiðir í suma af þessum sem við nefndum á nafn og ákváðum að hætta þessu rugli og snúa okkur að öðru. Samt ákváðum við það að hefna okkar svo um munaði til að gera ákveðna aðila eins reiða og við vorum orðnir. Kannski að þeir myndu skilja hvað væri í gangi, kannski ekki.

Það sem ég og Balli vorum búnir að vera gera lengi var að reyna að fá fólk til að fylgja mjög einfaldri reglu: haga sér almennilega. Við tókum einn og einn fyrir og spjölluðum við hann ef einhvað sem átti ekki að gerast, gerðist. Það sem við fengum í staðinn var kvart yfir hinu og þessu; of langt bann, hann gerði þetta fyrst við mig, og þessi var svona og hinseginn áður en ég kallaði hann þetta. Ég og Balli vorum orðnir mjög þreyttir á þessu, aðalega vegna þess að okkur fannst við ekki fá neitt til baka frá samfélaginu sem við vorum að reyna að gera skemmtilegt. Því meira sem við gerðum til að bæta móralinn því verri varð hann, og því urðum við mjög reiðir. Við byrjuðum að taka harðar á þessu og banna hiklaust ef einhver sagði einhvað, því yfirleitt voru það sömu aðilanir. Á endanum urðum við það reiðir og þreyttir á þessu að við ákváðum að hætta að standa í þessu og ákváðum að henda blautri tusku framan í þá aðila sem okkur fannst standa á bak við þetta, hvort sem þeir gerðu það eða ekki. Við ákváðum að hefna okkur svo um munaði og ætluðum að gera alla alveg brjálaða, svo að þeir myndu skilja hvað við sjálfir vorum orðnir reiðir og þreyttir á þessu.

Í megin atriðum tókst það mjög vel að hræra aðeins í þessu fólki. Og til að hafa það á hreinu þá stóð aldrei til að banna einn né neinn. Adminar vissu ekki einu sinni af þessu og þeir urðu mjög reiðir út í okkur fyrir að hafa sent þetta inn, enda skrifuðum við í þeirra nafni. Aftur á móti skildu þeir alveg hvað við vorum að gera því þeir vissu hversu reiðir við vorum orðnir. Og vill ég koma fram þakklæti við þá vegna þess.

Ég og balli vorum orðnir leiðir á móralnum og leiðir á okkur sjálfum í þessu hlutverki sem við vorum í.

Nú er hinsvegar komin tími til sátta og reyna að gera gott úr hlutunum. Það veltur að miklu leyti á þeim aðilum sem við nafngreindum og hvort þeir geti fyrirgefið mér og balla fyrir það sem við gerðum.

Svenni er góður spilar og góður vinur. Ástæðan fyrir því að við gátum ekki verið í sama klani lengur var einfaldlega sú að við vorum ósammála um ýmsa hluti, og í stað þess að rífast um þá í hvert skipti sem einhvað átti að gerast og skemma þá vináttu var ákveðið að fara frekar þessa leið.

DelphiGiz er einnig góður vinur og vill manni allt hið góða, þetta er að vísu einn misskildasti maður sem ég þekki, veit ekki hvort að það sé gott eða slæmt :)

Radiance er hress strákur og þeir sem eiga hann sem vin mega þakka fyrir það.
Hina 4 þekki ég ekki mikið nema af samskiptum á huga og ircinu, en þetta er án efa allt fínasta fólk.

Það sem við sögðum um ykkur var frekar lélegt af okkar hálfu og ekki rétt, en við vonum að þið skiljið afhverju við gerðum það sem við gerðum.

Við biðjum þessa 7 aðila afsökunar á þessum korki og einnig viljum við biðja hina admina afsökunar á því að hafa farið á bak við þá.

Við vonum að nú getum við grafið stríðsöxina og reynt að hafa gaman af þessum leik. En það veltur að sjálfsögðu á því hvort þessir aðilar geti fyrirgefið okkur það sem við gerðum.

Þegar upp er staðið erum við bara tölvunördar eins og allir aðrir sem lesa þetta :)

Friður
Potent og balli