Til þess að fylla upp í skort á greinum um leikinn sjálfan þá er ég hér með smá grein um það hvernig er hægt að bæta nýtingu sína á Shock Riffle.

Til þess að verjast Shock riffle er best að nota Shock riffle.
Málið er það að orkuboltaskotin sem hægt er að skjóta með secondary fire geta stöðvað orkuboltaskot andstæðingins í átt að þér.
-
Þetta er gott til þess að verjast Shock Riffle combo-inu sem virkar þannig að fyrst er skotið orkubolta og hann síðan sprengdur í loft upp með hefðbundu Shock Riffle skoti.
-
Gott er að nota combo-ið með því að skjóta orkubolta fyrir horn, bíða í smá stund, og sprengja hann þegar þú veist að andstæðingurinn er kominn.
Þetta krefst auðvitað vissrar tímasettningar, sem er frekar fljót að koma eftir smá æfingu.
-
Góður bardagi milli tveggja Shock Riffle meistara felst í því að reyna að sprengja orkubolta andstæðingsins í fésið á honum með því að skjóta í hann venjulegu skoti.

Í raun má hugsa um Shock Riffle sem nútíma útgáfu af sverði og skjöld, og getur þessi hugsun án efa hjálpað þeim sem standa sig illa í því að nota þetta frábæra vopn.