UT Bunker Mót Unreal Tournament mót verður haldið í Bunker í Síðumúla 37.

Mótið verður haldið laugardaginn 24 Janúar. Haldin verður Capture The Flag keppni og DM/1on1 keppni. Leikir byrja stundvíslega kl. 17:00.
Keppnisgjald er aðeins 1500 krónur.
Keppendur þurfa ekki að mæta með vélar né neinn búnað.( þó að þeim sé velkomið að koma með sínar eigin vélar eða mýs, lyklaborð, headset, músamottur)

Á staðnum eru u.m.þ.b 26 Pentium 4 2.4GHz tölvur með 512 DDR minni. Þær eru búnar 19" skjám, 128MB GeForce 4 Ti skjákortum og Logitech MX500 lasernmúsum. Auk þess að stólanir eru sérstaklega þægilegir og stillanlegir.

Það er bæði Reyk- og reyklaust því staðurinn býður uppá 2 hæðir. Sjoppa er á staðnum og sérstakt Dominoz tilboð gildir einnig, stór pizza sent á staðinn, aðeins 1500 krónur.

Eina sem þú þarft að gera er að senda email á seifur@simnet.is , seifur@simnet.is.

Sendu nick, nafn, kennitölu, email eða símanúmer auk 4 meðlima liðs þíns.
En ef þú ert ekki með lið eða langar bara að kíkja til að skemmta þér, getur þú samt skráð þig og verið í “mix” liði, samansett af spilurum sem nenna ekki að hafa mikið fyrir hlutunum, vilja bara mæta og spila.

Fyrirspurnir ganga allar til MrSmile/Halla eins og stendur en Zappy/Rikki á einnig eftir að sjá um hitt og þetta. Contact:
seifur@simnet.is
irc @ #ut.is > MrSmile
eða smáskilaboð hérna á huga. Einnig er vert að skoða www.bunker.is