Sælar.
Ég er búin að setja upp smá Duel deild hérna þetta er ekkert fancy neitt eins og kannski Þursinn eða clanbase eða einhvað er. Ég hef allavega sett upp smá síðu www.einvigi.tk og byrjar skráning 1 maí, eða á morgun, og stendur hún til jah bara 20 í keppnina til þess að skrá sig sendu þá email með nicki og emaili á gsig@talnet.is
Það er ekkert skilyrði í þessa keppni ekki nema bara að eiga UT2003 það meiga allir skrá sig. Ég er ekki búin að setja upp neina riðla eða neitt svoleiðis ég bara miða við það að hámark 16 manns geta skráð sig. Keppnin mun byrja í júní og ég ætla að reyna að hafa fyrstu leikina þriðjudaginn 3 júní ef allt gengur vel. Keppt verður á þriðjudögum og fimmtudögum klukkan 20 eða 21 ekki alveg ákveðið gæti verið bæði =)
Leikreglurnar eru svona bland af Cal UT2003 1on1, ultra unreal 1on1 og Clanbase 1on1 reglum. Spiluð verða 2 möpp og fær hver leikmaður fær að velja 1 mapp úr sérvöldum mapplista sem er að finna á www.einvigi.tk
Spilað verður með TTMv2 og verða bæði simnet og Z server notaðir í þetta (ip, Simnet:194.105.226.121 Z:130.208.221.216). Þið getið lesið ykkur allt um hvernig reglurnar og hvernig server stillingar eru á www.einvigi.tk
Verðlaun í þessari keppni eru jah þar sem þetta er eina UT2003 keppnin á íslandi að þá er þetta bara íslandsmeistaratitill í UT2003 1on1. :)
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir að þá geturu spurt hér eða talað við mig (Castrate) eða DippeR á irc erum á #sos.is