Sælir.
Ég hef tekið eftir því að það er mikið um dúel núna. DippeR hefur verið að setja upp duel fyrir spanky og hann hefur spilað nokkra leiki.
Þannig að ég var að spá í hvort það væri áhugi hérna fyrir lítilli duel keppni. Við myndum hafa þetta mjög lítið til að byrja með hafa 8 manns þar sem það eru ekki margir active í ut2003 og svona til að prufa þetta og sjá hvort þetta gengur einhvað.
Við notum double elimination system til að gera þetta aðeins meira spennandi. Nota Simnet serverinn og kannski Z serverinn ef pezik leyfir.

Verðlaunin yrðu einhvað lítið þar sem þetta mun vera svona prufukeyrsla á þessari keppni gætum svo sem fundið einhvað sniðugt sem verðlaun.

Ég er allavega alveg til í að setja þetta upp kannski koma fyrir smá heimasíðu með stats og svona einhverstaðar. Ég mun þurfa einhvern í þetta með mér kannski að ég ræði við DippeR eða einhvern ;)
Þetta yrði bara svolítið erfitt þar sem flestir hafa ekki alltaf tíma í þetta þannig að það yrði svolítið erfitt að halda þessu gangandi almennilega.

Ég mun hafa þetta eftir öll próf eða bara í sumar einhverntíman. En hvað segiði er áhugi fyrir þessu hérna?