Ég vil byrja á því að segja GG.. Takk fyrir frábært blast strákar!

Í kvöld, þann 22. feb, hópuðust nokkrir Unreal spilarar saman á skjálfta21 til að spila UT2003 CTF. Leikurinn færðist fljótlega yfir á Z serverinn, þar sem hann laggar minna.. Enda á öflugri tengingu og vel tweakaður, búinn TTM og mapvote.

Við vorum 10-12 þegar mest var og spiluðum við aðallega CTF-Maul og CTF-DE-Elecfields. Persónulega fannst mér Maul skemmtilegra þar sem mér gekk betur í því.

En tilgangurinn með þessari grein var að athuga hvort áhugi væri fyrir að hafa svona blöst reglulega, kannski 1-2 í viku. Og þá á hvaða tímum? Hvenær vill fólk hafa blöstin? Ég held að kl. 21 á lau. sé mjög fínn tími, spurning hvað öðrum finnst. Ég væri líka til í blast kannski kl. 20-21 á þriðjudögum.

Hvað segiði, eigum við að slá til?

kv,
[SoS]DippeR