Unreal Tournament leikirnir eru ÁN EFA bestu leikir sem gerðir hafa verið og þeir hafa hjálpað okkur með reiði, sorg og gleði. Það var ekkert skemmtilegra en að spila á server og láta drepa sig og drepa aðra og ganga berserksgang með einhverjar geisla og sprengjubyssur. Og reyna að heilla einhverja úber góða gaura með því að enda síðan ofan í hrauni með fánann. En það mætir enginn núna á servera, örugglega vegna þess að það er eitthvað vandamál með servera, en þá eigum við bara að senda blómvönd eða konfekt kassa til björnjúl og fara niður í f.á og kyssa x-ar á kinnina. Þið eigið líka að gefa öllum vinum, frændum, kærustum, foreldrum, afa og ömmu leikinn í gjöf og segja þeim að spila hann. Þið megið líka alveg fara að senda inn kannanir, greinar og myndir því ég held að það sé ein könnum í bið núna…Það verður bara okkur að kenna ef þessi leikur deyr út..reynið að senda einhverjar greinar því það er nóg að tala um á þessu áhugmáli. Ég væri alveg til í að halda eitthvað lan eins og puttann eða mæta á skjálfta með spjöld á prikum og kalla “Spilið UT!” yfir allan salinn og gefa skrifuð eintök af UT. Endilega sendið sendið eitthvað á þetta áhugamál og skipuleggið eitthvað lan.

To much koffín and nikotín…Maggi ég elska þig og ykkur alla

Roadrunner Trúboðafoli