Ég og frænka mín erum búin að vera að rífast um hvernig orðið guð er á latínu.
Ég sagði að það væri Dio þar sem ég las það í einhverri bók, hún sagði að það væri Deo af því að hún var að syngja einhvern sálm í skólanum, og hún spurði kennarann hvað Deo þýddi og kennarinn sagði guð eða herra.
Og svo sá ég þessa setningu á netinu áðan: “Agnus Dei” (Lamb of God).
Spurningin er þá hvað er rétt. Dio, Deo eða Dei?

Með fyrirfram þökkum
H13