Ég á að skila ritgerð í ensku í dag og vegna anna hef ég ekki haft mikinn tíma til að gera hana. Nei, ég er ekki að biðja neinn um að senda ritgerð :P Ég ætlaði bara að spurja hvort einhver hérna getur lesið yfir hana fyrir mig. Ég gerði hana mestalla í gærkvöldi, frekar þreytt svo ég gerði örugglega slatta af villum. Svo er ég vön að nota ordabok.is þegar ég er ekki viss á stafsetningu en netið virkaði illa í gær (blindbylur og búið að snjóa yfir sendana) svo ég þurfti oft að giska.

Ég myndi lesa yfir sjálf, en það er bara svo erfitt með manns eigið efni. Ég gæti líka látið einhverja vini mína gera það en þau eru öll svipað upptekin og ég. Þetta er bara 1 og 1/2 bls í 12 punkta letri og örugglega ekki mjög erfitt að fara yfir.

Ég væri mjög þakklát ef einhver gæti gert þetta fyrir mig, sem fyrst.