Já, þannig er það, ég er að fara í próf á morgun, í þýsku og ég lenti í því leiðinlega atviki að gleyma þýskubókunum í skólanum.

Svo ég var að pæla hvort að eitthver hérna gæti verið svo góður að láta mig fá svona það helsta sem ég þarf.

En það sem ég þarf er að:
* Kunna að spyrja til vegar, útskýra hvert fólk er að fara.
* Tölurnar
* Mánuðina
* Kunna að segja hvenær ég eða e-r eigi afmæli
* Vikudagana
* Geta sagt hvaða vikudagur er á e-m mánaðardegi
* Kunna að setja orðið ‘haben’ fyrir aftan öll fornöfnin (ich, wir, sie, Sie, o.s.fr.)
* Kunna fornöfnin (ich, wir, sie, Sie, o.s.fr.

Með von um fljót og góð svör og með fyrirfram þökkum

Nesi#13