Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

Schecter C1+ (14 álit)

Schecter C1+ Ég var bara alveg búinn að gleyma að monta mig af þessum :)

Fékk hann fyrir hálfu ári síðan, myndin var tekin þegar hann var splunkunýr upp úr kassanum. Þetta er C1+ í Faded Cherry lit, og eins og allir svölustu gítarleikararnir þá er ég að sjálfsögðu lefty :D

Tímabundið hætti Schecter framleiðslu á lefty módelinu, en ég pikkaði hann upp á eBay eftir að hafa eytt 2 mánuðum í að leita að nákvæmlega þessu módeli.

Það er mikil saga á bakvið þennan gítar :)

Upphaflega sá ég svona gítar á music123 fyrir 3 árum síðan, ég setti eitt stykki á pöntum, beið í hálft ár en aldrei var hann In Stock. Að lokum gafst ég upp. Fyrir 7 mánuðum fór ég inn á síðu Schecter og rak augun í mynd af honum með stóru merki framan á: “Left handed model discontinued”. Ég fékk hjartaáfall þar sem ég átti ekki von á að fá tækifæri til að eignast þennan fallega grip. Ég ákvað því að gera það að takmarki mínu að finna síðasta stykkið sem ennþá væri til sölu í heiminum!

Ég hafði samband við Schecter beint, þeir sögðu mér að þeir hefðu hætt framleiðslu nokkrum mánuðum fyrr og að það væri lítill séns að finna hann ónotaðan. Starfsmaðurinn sem ég talaði við tók einhvern áhuga á málinu og nokkrum vikum seinna fékk ég e-Mail frá honum aftur, þar sem hann benti mér á að ákveðinn Schecter retailer í USA væri að losa upp lagerinn og selja hann á eBay, og þar á meðal þessa elsku. Ég var fljótur að eigna mér hann og það sem betra var fékk hann á tilboðsverði þar sem það á að vera einhver skráma aftan á honum (ég hef nú aldrei orðið hennar var).

Það er þó gaman að segja frá því að Lefty módelið er aftur komið í framleiðslu núna :)

Borgaði 380 dollara fyrir hann, list price $850, selst í netverslunum á ~$700, svo þetta var ágætis díll sem ég fékk!

Ó, og ekkert bögg með það að ég eigi að spila rétthent, annars kem ég heim til þín og lem þig með ýsuflaki! :P Ég spila betur svona, hef prófað bæði, og hvet ávallt örvhenta gítarleikara til þess að prófa þennan möguleika, þrátt fyrir að það sé aðeins erfiðara að finna draumagítarinn þinn, það verður bara skemmtlegt ævintýri að leita að honum í staðinn :)

Meistari eða hvað? (23 álit)

Meistari eða hvað? Hérna er Bob Dylan í góðum gí

Jo Stafford (3 álit)

Jo Stafford Jo Stafford var mjög fræg og er frægur ennþá jazz söngvari. Lést því miður núna 16 júlý 90 ára gömul.

The Beatles (5 álit)

The Beatles híhí mér finnst þetta svo sæt mynd af þeim (:

Blómagítar (10 álit)

Blómagítar Ibanez blómagíta

Málverk (18 álit)

Málverk Málverkið sem að er uppá vegg heima hjá mér.

Byrjaði sem lítil svarthvít ljósmynd af Bítlunum sem að pabbi “litaði” á svona fallegan hátt og sendi til Bandaríkjana.

Þar var eitthvað fyrirtæki sem að málaði stórt málverk nákvæmlega eftir ljósmyndinni.

Verð að segja að þeim tókst þetta bara helvíti vel.

Lennon (21 álit)

Lennon Fann þessa skemmtilegu mynd af John Lennon með geðveikan Rickenbacker og að sjálfsögðu rettu í hægri. Sjáið hvað kallinn er sáttur með lífið.

Henkka og Alexi (24 álit)

Henkka og Alexi Bassaleikari Children Of Bodom ásamt Alexi meistara Laiho. Geta má þess að ég á svona peysu.

Yours to keep - Albert Hammond jr. (5 álit)

Yours to keep - Albert Hammond jr. Frábær plata með osom tónlistarmanni. Fyrir þá sem ekki þekkja hann þá er hann söngvarinn í The Strokes. Mæli með þessari plötu.

Akercocke - Antichrist (18 álit)

Akercocke - Antichrist Progressive black/death eðall.

Það var kominn tími á nýja mynd!

http://www.myspace.com/akercocke
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok