Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

5,5x14" Segment snerill (3 álit)

5,5x14" Segment snerill Þetta er snerill sem pabbi minn smíðaði handa trommukennaranum mínum Þorvaldi Kára. Hann er gerður með aðferð sem heitir segment. Hann er úr bæði hlyn (maple) og hnotu (dökki viðurinn). Hann er líka með reinforcement hringum. Hardwarið er af Sonor 3007 sneril.

Stókur (7 álit)

Stókur þetta er eithvað dót sem ég bjó til fyrir hljómsveitina mína þegar hún hét Stróku

Rammstein - Mütter (45 álit)

Rammstein - Mütter Fyrsta metal platan mín, fékk hana þegar ég var 8 ára og hlustaði stanslaust á hana í 4 ár.. orðinn hundleiður á henni núna auðvitað enda hlusta ég núna á aðeins meira extreme núna.

Effektabrettið (25 álit)

Effektabrettið Þetta er effektabrettið mitt. Er búin að vera að dunda mér við að setja púsla þessu saman, tengja og raða öllu upp.
Þetta er Road Ready taska sem ég fékk í Hljóðfærahúsinu (Pfaff flytja þetta inn), ég er mjög ánægður með hana. Sterk, ekki of þung og mjög sniðug ef þú villt ekki vera með snúrur og vesen útum allt á brettinu þínu :)

Var að ljúka við þetta núna um daginn og held að ég gæti ekki verið mikið ánægðari með útkomuna.
Hörku sound, suðar lítið sem ekki neitt og þægilegt að komast í alla effektana (raðaði þeim auðvitað þannig að auðveldast er að komast að þeim sem ég nota mest).

Ég notaði aðallega Planet Waves patch snúrur sem maður setur saman sjálfur til að tengja þá saman, mæli sterklega með þeim.
Ræður algerlega hvernig snúrurnar er á brettinu hjá þér með þeim (lengd, hvernig þær liggja og hvernig hausarnir snúa). Svo er ég líka með nokkrar Fender 1ft. Koil Kord patch snúrur.


Röðin á effektunum er svona:

- MXR Boost/Line Driver (nota hann til að keyra aðeins upp signalið úr bassanum í gegnum keðjuna)

- EHX BIG MUFF Pi U.S.A. (Fuzz, lítið fuzz en dimmt og þungt sound)

- EHX Big Muff Pi USSR (Fuzz, mikið fuzz, meira treble, þungt en sker vel í gegn)

- Dunlop CryBaby (Bass Wah, nota hann á eftir fuzz effektunum til að fá greinilegra wah sound úr honum)

- Digitech Whammy (nýjasta nýtt á brettinu, mjög skemmtilegur effekt sem ég á eftir að grúska aðeins betur í)

- MXR Stereo Chorus (Chorus, nota hann aðallega til að fá aðeins stærra sound, bæði clean og með drive)

- EHX BassBalls USSR (Twin Dynamic Filter, envelope filter, mjög einkennilegur og “funky” effekt, er einnig með distortion rofa sem eykur bara á geðveikina í þessum pedal)

- EHX #1 Echo (Delay, <– segir sig eiginlega sjálft, get líka notað hann til að búa til skemmtilega skrítið reverb)

- Ernie Ball VP Jr. (Volume Pedal, góður, nettur og sterkur volume pedall)

- Boss TU-2 (Chromatic Tuner, eini pedallinn sem ég gæti ekki verið án, mjög góður tuner sem er alveg brilliant að vera með þegar maður er að spila live, á æfingu eða bara heima)

**- Svo nota ég DC Brick til að fá straum í allt (nema Whammy og Big Muff Pi USSR, þarf sér straumbreyti fyrir Whammy (PS0913B) og battery fyrir Big Muff (ekkert tengi fyrir straumbreyti)


…þetta er brettið mitt. Ef það eru e-r spurningar þá spyrjið mig bara :)

Tveggja strengja (12 álit)

Tveggja strengja Frumlegt, en alveg hryllilega ljótt.

Jónsi í Sigur Rós (1 álit)

Jónsi í Sigur Rós Í Toronto held ég.

Epiphone 1967 Flying-V (7 álit)

Epiphone 1967 Flying-V Gamli feiti (2ja ára gömul mynd af gamlegamle, líklega svona 15 kílóum feitari en í dag, og með 20cm síðara hár) live á Gauknum þegar hann var og hét, með '94-model Epiphone 1967 Flying-V í standard-D tjúningu. Þar sem maður á alltaf að geta heimilda, þá er þetta stolið af superman.is eins og vatnsmerkið á toppnum gefur til kynna :P

Hammerfall (4 álit)

Hammerfall glory to the brave, góð plata

flying V copy hans james (14 álit)

flying V copy hans james Þetta er afar ágætismynd af einum af aðal gíturnum hans James Hetfield í metallica á fyrstu 3 plötunum þeirra.

Margir halda að þetta sé alvöru gibson flying V en þetta er reyndar bara eitthver kínversk copya sem hann keypti á 200 dollara mest út af honum Michael Schenker úr UFO á þeim tíma. Hann lét setja í hann seymour duncan pickupp í brúna hjá sér. Veit afar lítið um specinn í honum nema að hann er með dot inlay og búkurinn er úr adler.

eitthver ágætis myndbönd af gripnum hérna

http://www.youtube.com/watch?v=Ex5UPPfSTGQ

einn önnur mynd


http://userserve-ak.last.fm/serve/_/4848033/Metallica+james1gy8.jpg

Trivia (7 álit)

Trivia Jæja hver er þetta?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok