Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

Overcome - All That Remains (7 álit)

Overcome - All That Remains Nýja platan eftir All That Remains
mjög góð melódísk og gott ef þú vilt headbanga…

Baldwin Syntha-sound (12 álit)

Baldwin Syntha-sound Hér er synthi frá Baldwin sem heytir einfaldlega Baldwin syntha-sound.
Ég veit ekki betur nema að hann hafi verið framleiddur eitthvað upp úr '70.
Ég er að leita af svona stykki.

Babylon Bombs (7 álit)

Babylon Bombs Eðal rokk og ról frá svíþjóð!

About Face (4 álit)

About Face Flott plata með Gilmour sem ég var að fá mér um daginn. Sum lögin eru frekar tæp en önnur eru frábær og minna mikið á late Pink Floyd.
Pete Townshend samdi tvo texta á plötunni fyrir hann og þeir sem spila með honum á plötuna eru engir aðrir en Jeff Porcaro og Pino Palladino

Susan Boyle (6 álit)

Susan Boyle Ný stjarna raunveruleikasöngvakeppninnar Britain's got talent. http://www.youtube.com/watch?v=9lp0IWv8QZY&feature=related hér er myndbandið með henni.

Alexander Ridha (2 álit)

Alexander Ridha Alexander Ridha, betur þekktur sem Boys Noize. Algjör snillingur að mínu mati og hefur gert mörg af bestu remixum sem ég hef heyrt.

Mín uppáhalds remix

Justice - Phantom Pt II (Boys Noize Remix)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=2FPVTNfaKUY

Feist - My Moon My Man (Boys Noize Remix)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=xXDzbAo6VT8

Shiny Toy Guns - Le Disko (Boys Noize Remix)
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=7nliiohnseU

og svo lögin sem ég fíla mest eftir hann sjálfan

Lög eftir hann sjálfan:

& Down
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=VwzRLgJorYQ

Feel Good (Tv Off) [Þetta skrítna intro hættir á 0:55, þá byrjar stuðið]
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=woB549exqhc

Rotten Sound - Exit (1 álit)

Rotten Sound - Exit Grindcore klassík.

Wacken (2 álit)

Wacken Í ár verður í fyrsta sinn haldin á Íslandi undan­keppni fyrir alþjóðlegu hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle. Wacken er nafnið á litlum smábæ í Norður-Þýskalandi sem á hverju sumri umturnast í einn allsherjar risa þunga­rokksbæ þegar Wacken : Open : Air hátíðin er haldin. Fyrstu helgina í ágúst þjarka þar inn fyrir bæjar­mörkin 70.000 gestir hvaðanæva úr heiminum til að hlusta á kanónur þungarokksins spila. Í ár er svo komið að hátíðin verður haldin í 20. skiptið og því verður mikið um dýrðir.

Á síðustu árum hafa skipuleggjendur hátíðarinnar gefið fjöldanum öllum af ungum og efnilegum hljóm­sveitum tækifæri til að koma og spila á þessari hátíð. Í því skyni settu þeir á laggirnar hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle árið 2004. Sigursveit keppn­innar hlýtur m.a. að launum hljómplötusamning fyrir allan heiminn, magn­ara, trommu­sett og fullt af öðrum græjum og auðvitað heiðurinn af því að spila að ári fyrir mörg þúsund manns á mun betri stað í prógramminu á þessari hátíð. Þeim er auk þess boðið að spila á hinum ýmsum undankeppnum næstu Metal Battle keppni út um allan heim!

Einn stærsti þungarokksviðburður ársins
Til þess að gera þetta að enn stærri viðburð en þegar er, verður haldið sérstakt pre-party daginn fyrir keppnina, eða 17. apríl. Þar koma saman 5 af frambærilegustu þungarokkssveitum landsins til þess að hita upp fyrir keppnina daginn eftir. Sjálf undankeppnin verður s.s. haldin 18. apríl en bæði kvöldin verða haldin á Dillon Sportbar í Hafnarfirði.
Það er líklega ekki vanmat að segja að þessi viðburður sé einn stærsti þungarokksviðburður ársins (sem ekki inniheldur erlenda artista), ef ekki sá stærsti. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar þungarokkssveitir munu koma fram á Wacken Open Air, virtasta og stærsta þungarokksfestivali heims eins og verður einmitt afleiðing þessarar keppni.

Keppniskvöldið
Þær sveitir sem taka þátt í Metal Battle kvöldinu voru valdar af dómnefnd úr innsendum umsóknum og koma fram í þeirri röð sem þær eru hérna (efsta sveitin spilar síðast):

Diabolus
Severed Crotch
Perla
Gone Postal
Celestine
Beneath
Wistaria

Laugardagurinn 18. apríl
Húsið opnar 18:00 - Byrjar 18:30
Ekkert aldurstakmark!
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð

Metal Battle Pre Party kvöldið

Changer
Agent Fresco
Munnriður
In Siren
Carpe Noctem

Föstudagurinn 17. apríl
Húsið opnar 21:30 - Byrjar 22:30
18 ára aldurstakmark
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð

Buckethead gítarinn (31 álit)

Buckethead gítarinn Fallegi Custom gerði Gibson les paul-inn hans Buckethead. Ég þekki mannin svosem ekkert mikið en langar samt að reyna að kynna hann fyrir þeim sam hafa áhuga.

Buckethead, eða Brian Patrick Carroll eins og hann heitir réttu nafni fæddist árið 1969. Hann hefur spilað á gítar síðan hann var 12 ára og kom sér fyrst á framfæri árið 1988 eftir að hafa æft til dæmis hjá Paul Gilbert. á þeim 20 árum sem hann hefur verið aktívur hefur hann gefið út 25 sólóplötur en hefur verið í yfir 150 projectum og gefið út 78 plötur með öðrum tónlistarmönnum. Þessi maður semsagt frussukúkar tónlistinni sinni eins og ég veit ekki hvað. Veit ekki til þess að margir hafi gefið út eins mikið og hann enda eru þessar tölur nokkuð impressive.

Buckethead er orðinn nokkuð þekktur fyrir ímyndina sína, alltaf með plain hvíta grímu yfir andlitinu og með fötu á hausnum. Fatan var alltaf Kfc fata en núna er hún bara plain hvít. Svo er hann líka lltaf mjög þögull og er ekki mikið fyrir viðtöl.

Gearið hans er aðalega Gibson les Paul custom sem var gerður handa honum en það er soldið erfitt að fá upplísingar um hann þar sem að Gibson gefur ekki út upplísingar um sérsmíðaða gítara. En þessi mynd útskýrir takkana á honum http://img211.imageshack.us/img211/7679/lespauldiagram9qv.jpg
Hef líka heyrt að hann noti DiMarzio pickuppa og ég fann þetta. einhver frá Gibson á að hafa lekið þessu:
the pickup's (which is what everyone seems to want to know)
neck p/u is a Dimarzio Tone Zone, bridge p/u is a Dimarzio Air Norton.
Einhver sagði líka að hann notaði DiMarzio X2n (sem e´g var btw að kaupa um daginn)
Aðrir ´gitarar sem hann notar: Jackson Flying V, Steinberger GS, ESP MII, Gibson Chet Atkins, Ibanez X-Series Flying V, Takamine Acoustic, ‘59 Les Paul Custom, Gibson SG. ’69 Gibson Les Paul Custom

Myndbönd:

The Redeem team - Mitt uppáhalds lag með honum. innheldur mjög flott riff og bara mjög gott og einfalt lag í heildina
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=P3EA1glslM0&feature=related

Jordan - Lag sem aflaði honum allnokkrum aðdáendum þar sem að þetta var í guitarhero 2 leiknum. flott lag með allveg full miklum.. hvað er þetta? tremolo effect?
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=OTcg9JybEp8

Dawn at the Deuce - annað lag af sömu plötu og Redeem team. mjög flott fynnst mér allavega eins og mörg önnur af plötuni.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=DQVez2-EUkY

Welcome to Bucketheadland - Eitt af frægustu lögunum hans.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=0GFtkPJU1WE

Buckethead Lesson - Nokkuð magnað stuff sem hann gerir þarna. og þá serstaklega tap-ið. notar held ég alla puttana í það nema þumlana.
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=yaCErlW-3p8&feature=related

Ikimono Gakari (0 álit)

Ikimono Gakari Akaneiro no Yakusoku:
[youtube]http://www.youtube.com/watch?v=kuyJzEzHx6k
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok