Svona í stíl við myndina sem elvis2 sendi inn um daginn, þetta er dóttir mín, 5 mánaða gömul, að syngja og spila á lítinn skemmtara sem ég fann í draslinu heima hjá afa hennar..
Þessi snerill var smíðaður af pabba mínum. Snerillinn er úr eik, mahogany og síðan 4 þunnum hlynræmum. Hardware-ið er tekið beint af mapex pro m snerli. Þetta er fyrsti snerillinn sem pabbi smíðar og pabbi hefur ekki neitt vit á trommum. Tók hann mjög stuttan tíma. Síðan er hann líka búinn að smíða aðra vandaðri og flottari skel. Fleirri myndir: http://drummerworld.com/forums/showthread.php?t=42831