Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

Music Production - Námskeið (0 álit)

Music Production - Námskeið

Hljóðheimar í samstarfi við Hljóðfærahúsið og Pepsi Max efna til tíu vikna music production námskeiðs. Farið verður ítarlega yfir alla helstu grunnþættina í pródúseringu með hjálp tónlistarforritsins Ableton Live. Á námskeiðinu sem er tíu skipti tveim tímar í senn munu nemendur m.a. fræðast um tónlistarstarsköpun, einfaldar upptökuaðferðir, masteringu, uppsetningu á “LIVE” setti og margt fleira.
Á námskeiðinu munu nemendur vinna í að búa til sína eigin EP plötu.

Skráning og nánari upplýsingar má finna á http://www.hljodheimar.is

Crappollo fær nýtt líf!! (0 álit)

Crappollo fær nýtt líf!!
Gamli fékk nýtt líf núna áðan, hann hefur ekki átt sjö daganna sæla enda appollo... Litli bróðir minn hafði verið sniðugur þegar hann var að geyma hann fyrir mig og ætlaði að mála hann hvítan. Það heppnaðist ekki betur en svo að hann tippexaði hann hvítan!

En til að gera góða stutta þá pússaði ég hann upp og bæsaði. Svo skipti ég um allt hardware nema stilliskrúfurnar (geri það seinna þegar ég finn í hann sem passar)
í hann keypti ég actíva eftirhermu af emg 81 sem heitir Dragonfire 81, eini gallinn er að þetta pickguard er ekki alveg að fitta (stendur aðeins út fyrir) en ég reddaði því með því að nota það sem hengju fyrir Þórshamarinn minn sem ég hef átt ofan í skúffu lengi. restin er noname dót sem ég fann ódýrt á ebay, enn hey þetta virkar allt og upprunalega planið var að hafa hann sem veggskraut og það er hægt að fá hljóm úr þessu núna.

PS: dúkkukerran er til að gera þetta dúlló ;)

David Bowie (2 álit)

David Bowie
Klárlega einn sá besti í bransanum og allt of langt síðan hann hefur gefið frá sér nýtt efni. Þessi meistari gaf út sína fyrstu breiðskífu árið 1967, nánar tiltekið sama dag og Bítlarnir sendu frá sér meistaraverkið Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band. Þessi "debut" plata hans fékk ekki mikla athygli, en nokkru seinna gaf hann út lagið Space Oddity á smáskífu og skoraði þar með sinn fyrsta smell. Þetta var bara byrjunin því að hann átti eftir að verða ein glæstasta stjarna áttunda áratugarins og einn af áhrifamestu tónlistarmönnum tuttugustu aldarinar. Meðal hans þekktustu platna má nefna Hunky Dory, The Rise And Fall Of Ziggy Stardust And The Spiders From Mars, Aladdin Sane, Young Americans og Low.

setup-ið (4 álit)

setup-ið
 06' Gibson les paul standard og 81' marshall jmp 2203

Fenderinn til sölu (2 álit)

Til að fjármagna önnur kaup þá fer fenderinn á sölu

Þetta er '62 RI fender telecaster með Seymour Duncan antiquity pickuppum og kemur í bráðfallegri harðri tösku.

Hann er framleiddur 1995 ef mér skjátlast ekki

skellið bara á mig PM ef þið hafið áhuga eða hringið í 6980897.

- Atli

Ville Valo (0 álit)

Ville Valo
Ville Valo er söngvari í finnsku hljómsveitinni H.I.M eða His Infernal Majesty.

Höfner Nuclear Bass (2 álit)

Höfner Nuclear Bass
Nýji bassinn minn. Svakalegur. Vantar bara nokkra varahluti í hann.
Fleiri myndir hér: https://www.facebook.com/media/set/?set=a.1533024039264.75283.1044670507&type=3

100 uppáhalds lög Norðurlandanna (0 álit)

100 uppáhalds lög Norðurlandanna
Hér er ég búinn að reikna út hundrað uppáhalds lög Norðurlandanna í Eurovision síðan 1975 eftir hvaða prósentu af mögulegum stigum þau fengu.

George Harrison (0 álit)

George Harrison
Þessi mikli meistari var gítarleikari The Beatles og er líklega þekktastur fyrir það. Hann átti líke stórkostlegan sólóferil og spannar hann hvert meistaraverkið á fætur öðru. Plötunar All Things Must Pass, Living In The Material World, Thirty Three & 1/3, George Harrison og Cloud 9 eru plötur sem eru vel þess virði að athuga. 

Pedalaborð (update!) (8 álit)

Pedalaborð (update!)
Ég póstaði mynd af pedalaborðinu mínu fyrir ekki svo löngu en síðan þá hefur margt breyst. Ég er búinn að vera duglegur að vinna í pedulum sem mig persónulega langaði til að eiga en til að finna þá fullkomnu varð ég að smíða MJÖG mikið af overdrive pedulum og sigta úr þá sem eru þess virði að geyma.

POWER:
Ég var með Joyo straumbreyti, sem er bara Dunlop DC Brick klón. Á því eru 8x9V output og 2x18V ouput, sem er ágætt nema hvað að straumdeilirinn brann. Ég ditchaði það þá og keypti mér 2x 1000mA 9v straumbreyta og daisy chain snúrur sem duga fyrir 18 pedala. Auk þess er ég með 1x1000mA 18v straumbreyti sem er fyrir Holier Grail reverbið. Ég tók alla straumbreytana í sundur og víraði þá saman þannig að þeir fara í gang þegar ég tengi ketilsnúru aftan í pedalaborðið (sem ég setti þar).

Ég er þá með 3000mA af straum fyrir þessa pedala sem er mikið meira en nóg.

Pedalar:
Zendrive > 2x Wampler Plexidrive í einu boxi > Fairfield Circuitry - The Barbershop > Clark Gainster > Paul C - Timmy > Menatone Red Snapper 4-takka útgáfa með clipping switch > Boss MD-2 Mega Distortion (á eftir að finna distortion til að skipta honum út) > Boss CE-2 Chorus > Boss DD-2 Digital Delay (þekktur nú til dags sem DD-3) > EHX Holier Grail Reverb.

Inputs/Outputs:
Ég boraði í hægri hliðina á borðinu til að koma fyrir tengjum fyrir input/output þannig að pedalarnir geta ávallt haldist tengdir.

ps. Tekið skal fram að ég smíðaði alla pedalana nema Boss og EHX.

Fylgið @pedalprojects á Instagram til að sjá reglulega myndir af því sem ég er að gera ásamt FULLT af myndum af pedulum sem ég hef smíðað.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok