Gleymt lykilorð
Nýskráning
Tónlist

Ofurhugar

thorok thorok 3.424 stig
ghozt ghozt 2.270 stig
EXOZ EXOZ 2.216 stig
dordingull dordingull 2.170 stig
HoddiDarko HoddiDarko 2.026 stig
Brunahani Brunahani 1.556 stig
negrasvikari negrasvikari 1.400 stig

Stjórnendur

Tele-bastard (heildarmyndin) (17 álit)

Tele-bastard (heildarmyndin)
ég var beðinn um að sýna bastarðinn í heild sinni, so here you go:)

Talking Heads (7 álit)

Talking Heads já Talking heads er ein af mín uppáhalds hljómsveitum

tele bastard project (19 álit)

tele bastard project Sælir.
Langaði að sýna ykkur Tele-bastard-projectið mitt sem ég er búinn að vera að dúlla mér í að breyta, bæta og misnota í gegnum þó nokkurn tíma núna.

Þetta eru partar héðan og þaðan af jarðkringlunni.
Boddíið er tokai tele boddí keypt í einhverju skúmaskoti, aftan úr bílskotti í London af vini mínum.
Hálsinn er af Gömlum Morris strat-copy með ´70s haus. Jumbo frets, bullet trusrod og elgömlum Fender vintage tunerum.
Pickguard-ið er næfur þunnt (old style), sniðið af Gunnari Erni
Pikkupparnir eru Seymour duncan antiquity keyptir í Tónastöðinni .
Bigsby-ið keypti ég í hljóðfærahúsinu en skipti bridge-inu út fyrir mustang stól sem ég man ekki hvar ég fékk (var fullur að panta af netinu og fékk bridge-ið sem óvæntan glaðning einn daginn þegar ég átti síst von á:).
Volume/tone takkarnir eru af eldgömlum vintage MXR envelope filter gíter effect sem er löngu hætt að framleiða.
Svo skellti ég í hann 4 way pikkuppa swith þar sem ég get látið báða pikkuppana hegða sér eins og hálfgerður humbucker í fjórðu stillingunni.

Eins og þið sjáið er þessi gaur búinn að lenda í ýmsu. T.d hefur boddíið bókstaflega verið teymt í bandi í gegnum urð og grjót, mold, snjó og drullu í brjáluðu veðri. Síðan útatað í skóáburði sem var svo þveginn af og út kom þetta lúkk.
Ef þið skoðið pickguardið vel þá sjáið þið að það eru ennþá leifar af storknuðu blóði undir strengjunum eftir frekar “rólega” og “yfirvegaða” spilamennsku á einum tónleikum;)

En á heildina litið er þetta laaanguppáhaldsgítarinn minn þótt hann sé allger bastarður því hann sándar allveg eins og motherfokker, geggjað tele sánd. Ég á nokkra þrusugítara en þessi er bara með langmesta mojoið:)

vona að þið höfðuð gaman að þessu:)

Cattle Decapitation (5 álit)

Cattle Decapitation Karma.Bloody.Karma er nýjasta plata þessara drengja.

Ágætis Death Metal/Grindcore/Country? (lol) band hér á ferð.

www.myspace.com/cattledecapitation

Slayer - Reign in Blood (25 álit)

Slayer - Reign in Blood Þarf að kynna þennan disk? Breakthrough thrash metal diskur frá 1986 með Slayer.

1. Angel of Death
2. Piece by Piece
3. Necrophobic
4. Altar of Sacrifice
5. Jesus Saves
6. Criminally Insane
7. Reborn
8. Epidemic
9. Postmortem
10. Raining Blood
11. Aggressive Perfector (alternate version, bonus track)
12. Criminally Insane (remix, bonus track)

Princess Superstar (1 álit)

Princess Superstar ..

Crystal Castles - Crystal Castles (5 álit)

Crystal Castles - Crystal Castles Geeeðsjúkur diskur!

Hljómsveit á uppleið! Á topplistanum yfir hljómsveitir á myspace. Mæli með því að allir tékki á þeim!
www.myspace.com/crystalcastles

Trivia (8 álit)

Trivia Þessi hljómsveit hérna er frá Texas og spilar frábæra tónlist. Hvaða hljómsveit er þetta?

Rush (4 álit)

Rush Jæja…langt síðan maður sá mynd af öllum liðsmönnum Kanadísku proggsveitarinnar Rush hér inná. En þessa sveit skipa þeir Geddy Lee sem spilar á bassa og syngur. Alex Lifeson á gítar, og á trommur er einn albesti rokktrommari allra tíma, Neil Peart.
Rush eru eflaust þekktastir fyrir plötuna 2112 sem er meistarastykki!

Hluti af HAM! (13 álit)

Hluti af HAM! Hérna sjáið þið meistarana Sigurjón Kjartansson og Óttar Proppé úr HAM. Frábært band.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok