Að mínu mati er þetta íslenska Plata Aldarinnar, ég veit að Lifun eftir Trúbrot er góð, enda er hún í öðru sæti hjá mér, en þessi plata er bara hreint ótrúleg. Ég hvet alla til þess að taka þátt í könnuninni Plata Aldarinnar á visir.is.
Minningartónleikar til heiðurs Jeff Buckley verða í Þjóðleikshúskjallaranum í kvöld. 29.Maí var einmitt afmælisdagur hans og hefði hann orðið 35 ára í dag.
Hér má sjá umslagið af tónleikapötunni Space Ritual með Hawkwind. 70's geimsýrumetall upp á sitt besta! Til gamans má geta að Lemmy, sem seinna stofnaði Motörhead leikur hér á bassa.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..