Þessi leikur er með þeim bestu og ef ekki besti “quest”leikur í heimi. Grafíkin er mjög góð en hann getur laggað smá. Hann byrjar þannig að þú kemur úr skipi og það er verið að leysa þig úr fangelsi.
Þá verður talað við þig og þú segir hvaða class og race þú ert.
Síðan er framtíðinn þín. Þú ræður hvort að þú verðir þjófur eða heiðarlegur hermaður, töframaður eða brjálæðingur sem drepur heila bæina. Möguleikarnir eru margir.
Það fylgir kort með leiknum því þið þurfið á því að halda út af því að það eru mjög margir bæir í þessum leik. Ég mæli eindregið með honum.