Fyrir þá sem ekki vita hvernig á að kjósa (vote) til að skipta um borð eða henda spilara út sem er að angra alla (td. fer ekki í “Spectator mode” er hann skreppur frá) þá er það gert svona:

Inn í “Main Menu” farið inn í “Options” þaðan inn í “Advenced”
og setjið “x” í þar sem stendur “Console”…þetta þarf að gera aðeins einu sinni (ekki í hvert sinn sem þið ætlið að kjósa).

Nú..hér eftir til að opna “console-inn” ,til að kjósa,ýttu á takkann sem er í vinstra horninu fyrir neðan “Esc” takkann og skrifaðu “VOTE YES” án gæsalappa.
Ef þetta er gert rétt þá kemur “vote cast” í gulum stöfum í vinstra horninu hjá ykkur sem þýðir að þú ert búinn að kjósa.

Þetta er skrifað með því hugarfari að menn séu ekki í sífellu að spurja “hvernig votar maður”…leiðinlegt að útskýra inn í leiknum :)