Sælir kæru félagar og leikjanerðir. Þannig er nú mál með vexti að vodafone hefur slökkt á því að ég geti halað niður efni af erlendum vettvangi. Hámarkið hjá þeim er einhver 40gb sem er nú ekki neitt fyrir alvöru nerð eins og mig.

Allavega kemst ég ekki inn á neinar erlendar síður og get ekki spilað mína hefbundnu online leiki.

Ég hef því neyðst til þess að taka upp úr skúffunni helvíti skemmtilegan eins manns leik að nafni Crysis. En Crysis finnst mér lang skemmtilegast að spila ef ég hef 2-3 svindl með. Til dæmis allar byssur og endalaus orka fyrir búninginn.

Það væri því frábært ef einhver “fellow” leikjanerð gæti sagt mér einhver svindl fyrir Crysis. Ég veit að það er td hægt að nálgast slík svindl á ign.com en ég kemst ekki á neinar erlendar síður.

Með fyrirfram þökk,
Boxserinn