Þetta er leikur sem gengur út á það að kaupa bíla og tjúna þá og gera þá flotta og kraftmikla.Svo fer maður að keppa á bílunum og vinna aðra bíla eða verðlaun og svo ræður maður hver vinur manns er og getur stjórnað því með því að skipta við hann um bíla eða varahluti.Það eru ýmsar brautir í vali og það er drag race og margt fleira.
Þetta er allt saman gamlir bílar til þess að velja um Mustang Camaro BelAir og margt fleira.
Þessi leikur er aðeins fyrir online og kemur ekki út fyrir en í mars(héld ég) og ég bara rétt vona að símnet setji upp server fyrir hann því ég held að þetta eigi eftir að verða ágætlaega vinsæll leikur kannski ekki CS en nálægt því
Þið getið skoðað meira um hann á MCO.EA.COM og gefið mér svo álit ykkar á leiknum og hvað þið munduð vilja gera.
KV