Man einhver eftir einhverskonar LucasArts ‘leikjasafni’ frá árinu ca. ‘94-’96. Man það bara engan veginn. Það eina sem ég man eftir er að þetta var um borð í geimskipi - svona Star Wars þema. Man að einhversstaðar var X-Fighter inní geimskipinu sem maður gat labbað í kringum eða framhjá - man það ekki.
Maður labbaði inní einhverskonar herbergi og þar gat maður valið leiki til að spila. Allir svona í minna lagi ef ég man rétt. Til að spila leikina þá labbaði maður upp að svona skjá og þá lyftist maður uppá svona platformi .. eitthvað álíka.

Þetta er allt voða óljóst enda mörg ár síðan - það var bara þarna einn leikur sem mér þætti vænt að komast yfir :-)