Eftir því sem að tæknin veðrur fullkomnari þá verður erfiðara og erfiðara að láta gamla leiki eins og Thief 1 og 2 og System Shock 2 ganga á tölvunum. ATI. nVidia og öll þau fyrirtæki hafa engann áhuga á því að lagfæra þetta, þannig að gott fólk tók sig til og gaf út DDfix, sem að getur hjálpað manni að spila þessa gömlu góðu leiki á nýrri vélum. Mér datt í hug að láta fólk hérna vita af þessu ef að einhverjir hefðu verið að eiga í erfiðleikum við að spila þessa leiki.

Hérna er linkur til þess að ná í þetta og leiðbeiningar um notkun þess. Ég er búinn að prófa þetta á bæði System Shock 2 og Thief 2 og virkar mjög vel. Ef að þið viljið spila þessa leiki er þetta það sem þið þurfið. ;)