Núna nældi maður sér í Mass Effect og vonaðist eftir öllu góðu en svo virðist ekki alveg vera. Þegar ég byrjaði í leiknum á geimskipinu var allt í fína en þegar mér var hent á Eden Prime plánetuna leit leikurinn svona út:

http://img139.imageshack.us/my.php?image=dudeom8.jpg

Ég náði þó að klára Eden Prime með leikinn svona og komst í geimskipið og þá var leikurinn aftur orðinn góður. Svo er farið með mann í Citadel og þá varð þetta aftur svona.

Ég skil ekki hvað getur verið að, á screenshottinu þarna er ég með allt í high, ég hef fiktað í graphics í leiknum mikið en þetta er alltaf svona eins, verulega pirrandi.

Einhverjar uppástungur ?