Kæri meðlimur Þann 29. apríl kemur Grand Theft Auto 4 út. Segja má að margir hafi beðið lengi eftir þessum leik en nú er hann loksins að koma. BT ásamt PSX.is og Xbox360.is munu halda svokallaða miðnæturopnun mánudaginn 28. apríl. Ráðgert er að opna búðina (BT Skeifunni) kl 23:00. Haldin verður stutt kynning á leiknum af ritstjórum PSX.is og fólki gefst síðan kostur á að prufa leikinn og gæða sér á veitingum í boði BT. Þeir sem skrá sig á forpöntunarlistann fá leikinn á besta verðinu í bænum! Eina sem þið kæru notendur þurfið að gera er að heimasækja PSX.is, skrá ykkur á listann og mæta svo hress og kát mánudaginn 28. apríl kl 23:00 í BT Skeifuna. Listann má finna með því að smella á GTA4 myndina sem er staðsett efst hægra megin á forsíðu www.psx.is. Kveðja, stjórnendur PSX.is.


Fekk þetta í maili.. og langaði bara að deila ;)
Elska þig !