Jæja held að flestir hafi heyrt um kleinuhringja kappátið sem BT var með í tilefni að simpsons myndin var að koma út. En þannig er mál með vexti að maður ákveður að skella sér að borða nokkra kleinuhringi og hirða verðlaunin;D En svo mætir maður á svæðið og kemst að því að bara 10 fyrstu sem komu taka þátt!! Auðvitað fer maður að kvarta ásamt öðru reiðu fólki sem var á svæðinu þarsem það kom ekkert fram í auglýsingunni að þetta væri bara fyrir 10 fyrstu. Þá segir maðurinn sem við vorum að tala við að það hafi “gleymst” að setja þetta í auglýsinuna. Fucking rugl!! Bara dæmi um BT og sölumensku þeirra. Þeir voga sér að selja hluti nokkrum þúsundum dýrari en annarstaðar af´því að þeir vita að þeir ráða markaðnum. Svo er úrvalið er alveg til skammar og þeir dirfast setja svona hátt verð á þá takmörkuðu hluti sem þar eru seldir. Algjörir skítablesar. Endilega versla ekki við BT….
Ef þið hafið lent í svipuðum hlutum hjá BT eða þekkjið einhver sem hefur lent í svona endilega komennta!

Vildi bara koma þessu á framfærir!!


Bætt við 1. desember 2007 - 23:26
http://www.hugi.is/leikir/threads.php?page=view&contentId=5400856